5. ágúst 2026
5. ágúst 2026
Mannslát
Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald, eða til 2. september, á grundvelli almannahagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á andláti karlmanns um sjötugt í heimahúsi í Kópavogi um þar síðustu helgi. Maðurinn sem er í haldi var handtekinn í síðustu viku og úrskurðaður í gæsluvarðhald til 5. ágúst, sem nú hefur verið framlengt eins og áður sagði.
