Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

31. mars 2018

Þessi frétt er meira en árs gömul

Mannslát til rannsóknar í Árnessýslu

Kl. 08:45 barst lögreglunni á Suðurlandi tilkynning um að maður væri látinn í heimahúsi í Árnessýslu. Lögregla og sjúkralið fór þegar á vettvang og staðfestist þá það sem um var tilkynnt. Tilkynnandinn sjálfur, ásamt öðrum manni sem einnig var á vettvangi, eru í haldi lögreglunnar vegna rannsóknar málsins.

Tæknideild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi við rannsókn málsins.

Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um málið að sinni.