Fara beint í efnið

10. ágúst 2026

Mannslát í Kópavogi – tveir í gæsluvarðahaldi

Tveir karlar voru í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á andláti í Kópavogi í gær. Annar mannanna var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. ágúst, en hinn til 17. ágúst. Annar þeirra er íslenskur, en hinn er erlendur ríkisborgari.

Eins og fram hefur komið var tilkynnt um líkamsárás í heimahúsi í Kópavogi um miðjan dag í gær, en maðurinn sem fyrir henni varð var fluttur á Landspítalann og lést þar síðdegis. Hann var erlendur ríkisborgari á fimmtugsaldri.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.

UPPFÆRT 11.8

Þriðji maðurinn var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til 14. ágúst í tengslum við málið.

Viðkomandi er erlendur ríkisborgari.