Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. apríl 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Mannslát í Hafnarfirði – gæsluvarðhald til 17. apríl

Karlmaður um þrítugt var í kvöld í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í ellefu daga gæsluvarðhald, eða til 17. apríl, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á andláti konu um sextugt, sem fannst látin í heimahúsi í Hafnarfirði síðastliðna nótt. Maðurinn var handtekinn á vettvangi eins og fram hefur komið.

Karlmaður á sextugsaldri, sem var einnig handtekinn á vettvangi, er laus úr haldi lögreglu.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.