Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

5. apríl 2013

Þessi frétt er meira en árs gömul

Mannslát á Litla Hrauni

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum var lögregla á Selfossi kölluð að Litla Hrauni í gærkvöldi vegna refsifanga sem komið var að látnum í fangaklefa. Réttarkrufning á líki mannsins hefur farið fram. Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðu réttarmeinafræðings bar lát mannsins ekki að með saknæmum hætti.