Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

8. desember 2019

Þessi frétt er meira en árs gömul

Mannslát

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú mannslát, en á þriðja tímanum í dag barst beiðni um aðstoð frá austurborginni þar sem karlmaður hafði fallið fram af svölum. Maðurinn var fluttur á Landspítalann, en var úrskurðaður látinn eftir komuna þangað. Fimm hafa verið handteknir í þágu rannsóknarinnar, sem er á frumstigi.

Hinn látni var erlendur ríkisborgari, sem og þeir fimm sem eru í haldi lögreglu.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.