Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. mars 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Manndráp – tveir í áframhaldandi gæsluvarðhaldi

Tveir voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á manndrápi í austurborginni í síðasta mánuði. Annar var úrskurðaður í fjögurra vikna varðhald, eða til miðvikudagsins 14. apríl, á grundvelli a. og b. liðar 1. mgr. 95. gr. og 2. mgr. 95. gr. sml. og hinn í vikulangt varðhald, eða til miðvikudagsins 24. mars, á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Þá var einn til viðbótar úrskurðaður í fjögurra vikna farbann, eða til miðvikudagsins 14. apríl.

Þrír sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna málsins.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.