19. febrúar 2021
19. febrúar 2021
Þessi frétt er meira en árs gömul
Manndráp – gæsluvarðhald til 24. febrúar
Karlmaður á fertugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fimm daga gæsluvarðhald, eða til miðvikudagsins 24. febrúar, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á manndrápi í austurborginni um síðustu helgi. Áður höfðu sjö þegar verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins, en þeir sem eru í haldi eru allir á fertugsaldri utan einn, sem er á fimmtugsaldri.
Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.