Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. febrúar 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Manndráp – áframhaldandi gæsluvarðhald til 24. febrúar

Karlmaður á fertugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í áframhaldandi fimm daga gæsluvarðhald, eða til miðvikudagsins 24. febrúar, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á manndrápi í austurborginni um síðustu helgi.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.