Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

31. júlí 2006

Þessi frétt er meira en árs gömul

Malbikunarframkvæmdir í Hveradalabrekku

Fyrirtækið Hlaðbær Colas gerir ráð fyrir að byrja í kvöld malbikunarframkvæmdir á Suðurlandsvegi í Hveradalabrekku. Gert er ráð fyrir að verkið taki einn og hálfan sólarhring og mega vegfarendur búast við umferðartöfum á meðan á því stendur. Ökumenn eru minntir á að virða þær merkingar sem settar eru upp vegna framkvæmdana og aka gætilega um vinnusvæðið. Rétt er að minna á að hægt er að fara um Þrengsli til að komast hjá þeim töfum sem hugsanlega verða á umferðinni.