27. janúar 2017
27. janúar 2017
Þessi frétt er meira en árs gömul
"Making the Invisible Visible"
Jafnréttisstofa í samstarfi við Norrænar stofnanir og samtök, ásamt alþjóðasamtökunum MenEngage, mun standa að ráðstefnunni Making the Invisible Visible í Ósló þann 16. febrúar næstkomandi. Markmið ráðstefnunnar er að varpa ljósi á svið jafnréttismála sem snerta drengi og karla sérstaklega og leitað verður svara við því hvernig þátttaka þeirra getur stuðlað að auknum gæðum í jafnréttisstarfi. Aðalfyrirlesari er Norðmaðurinn Thomas Walle. Hann mun fjalla um þróun jafnréttishugtaksins með áherslu á hugmyndir um forréttindi karla í umræðu um mismunun og jafna stöðu kynjanna. Þá munu ungir jafnréttissinnar ræða hvað helst brennur á þeim og gefa dæmi um svið jafnréttismála sem tengjast hugmyndum um karla og karlmennsku. Norræna ráðherranefndin styrkir ráðstefnuna. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna ásamt dagskrá og kynningu á málsstofum má sjá HÉR
Jafnréttisstofa í samstarfi við Norrænar stofnanir og samtök, ásamt alþjóðasamtökunum MenEngage, mun standa að ráðstefnunni Making the Invisible Visible í Ósló þann 16. febrúar næstkomandi.
Markmið ráðstefnunnar er að varpa ljósi á svið jafnréttismála sem snerta drengi og karla sérstaklega og leitað verður svara við því hvernig þátttaka þeirra getur stuðlað að auknum gæðum í jafnréttisstarfi.
Aðalfyrirlesari er Norðmaðurinn Thomas Walle. Hann mun fjalla um þróun jafnréttishugtaksins með áherslu á hugmyndir um forréttindi karla í umræðu um mismunun og jafna stöðu kynjanna. Þá munu ungir jafnréttissinnar ræða hvað helst brennur á þeim og gefa dæmi um svið jafnréttismála sem tengjast hugmyndum um karla og karlmennsku.
Norræna ráðherranefndin styrkir ráðstefnuna.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna ásamt dagskrá og kynningu á málsstofum má sjá HÉR