Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. apríl 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Mældist á 149 km. hraða

Bifreið sem var á ferð eftir Reykjanesbraut um helgina mældist á 149 km. hraða þar sem hámarkshraði er 90. km. Undir stýri var 18 ára piltur. Annar ökuþór mældist á 132 km. hraða, einnig á Reykjanesbrautinni. Fleiri ökumenn brutu af sér í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Allmargir lögðu bifreiðum sínum ólöglega, m.a. á gangstéttum eða að þeir virtu ekki stöðvunarskyldu.