29. október 2020
29. október 2020
Þessi frétt er meira en árs gömul
Maðurinn sem leitað hefur verið að í Stafafellsfjöllum fundinn
Maðurinn sem leitað hefur verið að í Stafafellsfjöllum frá því í gærkvöldi er fundinn heill á húfi. Hann er nú á leið til byggða með björgnarsveitarmönnum. Lögreglan á Suðurlandi þakkar leitarmönnum og öllum þeim sem aðstoðað hafa við verkefnið kærlega fyrir þeirra framlag.
Á annað hundrað leitarmanna voru við leit og fleiri á leið á vettvang til aðstoðar. Þeim hefur nú verið snúið frá og eru væntanlega á heimleið í dag.