Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. febrúar 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Maður handtekinn vegna gruns um vinnumansal

Lögreglan á Suðurlandi handtók í gærdag erlendan karlmann í Vík í Mýrdal vegna gruns um vinnumansal. Fyrir liggur grunur um að maðurinn hafi haldið tveimur konum með erlent ríkisfang í vinnuþrælkun. Lögreglan á Suðurnesjum, mansalsteymi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, sérsveit ríkislögreglustjóra veittu aðstoð við aðgerðina auk starfsmanna ríkisskattstjóra. Rannsókn er í fullum gangi og á viðkvæmu stigi og lögreglan mun ekki veita frekari upplýsingar að svo stöddu.