Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

7. ágúst 2019

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lýst eftir Subaru Impreza YX633

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir rauðum Subaru Impreza GL með skráningarnúmerið YX633, en bílnum var stolið á Ásvallagötu í Reykjavík í síðasta mánuði. Sjáist bíllinn í umferðinni þá vinsamlegast hringið í 112, en upplýsingum um hvar bíllinn er niðurkominn má sömuleiðis koma á framfæri í tölvupósti á netfangið rafn.gudmundsson@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Meðfylgjandi er mynd af samskonar bíl og lýst er eftir.