26. janúar 2016
26. janúar 2016
Þessi frétt er meira en árs gömul
Lýst eftir Nissan Micra KO317
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir hvítum Nissan Micra með skráningarnúmerið KO317, en bílnum var stolið úr bílakjallara á Smáratorgi 3 í Kópavogi í gærmorgun. Sjáist bíllinn í umferðinni skal hringja tafarlaust í 112, en upplýsingum um hvar bíllinn er niðurkominn má sömuleiðis koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, eða í tölvupósti á netfangið gylfis@lrh.is
Þessum bíl var stolið úr bílakjallara á Smáratorgi 3 í Kópavogi í gær.