18. júní 2020
18. júní 2020
Þessi frétt er meira en árs gömul
Lýst eftir Checrolet Cruze GUS15
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir hvítum Checrolet Cruze árgerð 2011 með skráningarnúmerið GUS15
, en bílnum var stolið frá Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði í gær. Sjáist bíllinn í umferðinni þá vinsamlegast hringið tafarlaust í 112, en upplýsingum um hvar bíllinn er niðurkominn má sömuleiðis koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meðfylgjandi er mynd af sambærilegri bifreið.