Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. janúar 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lyftara ekið yfir fót starfsmanns

Lögreglunni á Suðurnesjum barst í vikunni tilkynning um vinnuslys í fiskvinnsluhúsi í Grindavík, þar sem lyftara hafði verið ekið yfir fót konu sem þar starfar. Stjórnandi lyftarans var að bakka honum í gegnum dyr milli vinnslusala þegar óhappið varð. Í fyrstu var talið að konan hefði fótbrotnað og var hún flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar. Betur fór þó en á horfðist því hún slapp með minni háttar meiðsl.