Fara beint í efnið

5. júní 2026

Lyfsalan á Hólmavík

Auglýst er eftir áhugasömum lyfsöluleyfishafa til að taka við rekstri lyfsölunnar á Hólmavík frá og með 1. október 2026.

Um er að ræða lyfsölu sem á sér langa og farsæla sögu og staðsett er í heilsgæslustöð Heilbrigðisstofnunar Vesturlands að Borgabraut 6-8 á Hólmavík. Húsnæðið býðst nýjum rekstraraðila til leigu.

Reksturinn er í fullum gangi og nýs rekstararaðila bíða tækifæri sem m.a. geta falist í að auka vöruúrval.

Í lyfsölunni starfar hæfur og reynslumikill starfsmaður sem sér um daglega umsýslu.

Áhugasamir hafi samband fyrir 26. júní 2026.

Upplýsingar veita Jóhanna F. Jóhannesdóttir forstjóri HVE, netfang johanna.johannesdottir@hve.is og Jóhann Björn Arngrímsson svæðisfulltrúi, netfang johann.b.arngrimsson@hve.is