30. ágúst 2023
30. ágúst 2023
Þessi frétt er meira en árs gömul
Lokun vega vegna hlaups í Skaftá aflétt
Eftir samráð við sérfræðinga Veðurstofu Íslands, Vegagerðina og almannavarnir hefur lögreglustjórinn á Suðurlandi tekið ákvörðun um að aflétta öllum vegalokunum vegna yfirstandandi hlaups í Skaftá. Um er að ræða:
Landmannalaugar inn á Fjallabak-nyrðra inná F-208Skaftártungnavegur (vegur 208) frá BúlandiInn á Álftavatnskrókinn á vegi F-210 inná F-233Vestan við vað yfir Hólmsár gatnamót F-210 og F-232
Vísbendingar eru um að hlaupið hafi náð hámarki og tekið að draga úr rennsli . Engu að síður má búast við vatnavöxtum, ekki síst í ljósi úrkomuspár á svæðinu næstu daga. Því geta ár og lækir flætt yfir bakka sína og vegir farið undir vatn. Enn er hætta á gasmengun við Skaftá og því er varað við að dvelja nálægt bökkum hennar að óþörfu.