Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

9. janúar 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lokun á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi

Viðamikil lokun á Hafnarfjarðarvegi á kvöldin og fram til morguns í fjóra daga! Í kvöld kl. 20.00 hefst vinna við útskipti á gatnalýsingu í Kópavogsgjá á Hafnarfjarðarvegi. Akreininni í átt að Reykjavík verður því lokað milli kl. 20.00 á hverju kvöldi og til kl. 06.30 morgunin eftir fram á föstudagsmorguninn 13. janúar en þá á framkvæmdum að vera lokið. Hjáleið má sjá á meðfylgjandi mynd og er hún merkt með grænum lit. Lokunin er merkt með rauðum lit.