6. október 2023
6. október 2023
Lokin brotamál á síðasta fiskveiðiári 2022/2023
Fiskistofa hefur tekið saman upplýsingar um niðurstöður þeirra 70 brotamála sem lokið var með ákvörðun á síðasta fiskveiðiári.
Tegundir brota voru margs konar og má þar helst nefna:
brottkast
vanskil aflaupplýsinga
veiðar án leyfis
vigtarbrot
Skiptust málslok með eftirfarandi hætti:
29 með ákvörðun um sviptingu veiðileyfis.
26 með áminningu.
5 voru kærð til lögreglu og eru tvö þeirra enn til vinnslu.
6 með leiðbeiningu en auk þeirra voru mun fleiri leiðbeiningar veittar vegna vanskila á aflaupplýsingum sem ekki eru talin með í þessari samantekt.
4 mál voru felld niður, eitt vegna vélarbilunar og annað á grundvelli neyðarréttar.
Á liðnu fiskveiðiári birti Fiskistofa allar ákvarðanir um sviptingu veiðileyfa og afturköllun vigtunarleyfa á grundvelli lagaskyldu sem lögfest var í júlí í fyrra í lögum um Fiskistofu. Birting ákvarðanna er ætlað að auka trúverðugleika og traust um starfsemi Fiskistofu og auka gagnsæi í störfum stofnunarinnar sem og varnaðaráhrif eftirlits Fiskistofu. Birting viðurlagaákvarðanna er ennfremur ætlað að auka fyrirsjáanleika fyrir þá sem starfa í greininni og stuðla að bættri umgengni um auðlindina.