Fara beint í efnið

16. júlí 2024

Lok strandveiða

Í dag er síðasti dagur strandveiða. Rúmlega 500 tonn af þorski voru eftir í pottinum í morgun sem er örlítið meira en afli gærdagsins.

fiskistofa strandveiði mynd

Sjósókn er góð í dag og því er þetta síðasti dagur sem hægt er að heimila strandveiðar. Auglýsing um stöðvun strandveiða verður birt á vef stjórnatíðinda síðar í dag og tekur gildi frá og með morgundeginum.

Öll strandveiðileyfi falla niður frá og með morgundeginum og er skipum þá heimilt að halda til veiða ef skip er með almennt veiðileyfi. Ef skip var í núllflokki áður en það fékk strandveiðileyfi þarf að sækja um almennt veiðileyfi áður en haldið er til veiða. Hægt er að skoða hvort skip sé með veiðileyfi á vefsíðu Fiskistofu undir skipaleit en athugið að strandveiðileyfið gæti verið inni í nokkra daga þrátt fyrir að búið sé að fella það úr gildi.

Þeir aðilar sem eiga rétt á byggðakvóta vilja fá úthlutað eftir að strandveiðum lýkur er bent á að senda erindi á byggdakvoti@fiskistofa.is og óska eftir úthlutun. Öllum erindum verður svarað og reynt verður að bregðast eins fljótt við og kostur er á, en töluvert álag er á úthlutun byggðakvóta við lok strandveiða.

Athugið að staða mótframlags á gagnasíðu Fiskistofu kann að vera vantalið þar sem skil á vorskýrslum júní mánaðar eru ekki fyrr en 20. júlí næsktomandi. Sjái útgerðaraðili fram á að þurfa fá byggðakvóta úthlutuðum fyrir þann tíma og telji sig uppfylla kröfu um mótframlag en staðan vantalin í gögnum Fiskistofu bendum við þeim á að hafa samband við vinnsluaðila.