Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. apríl 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lögreglumessa í Akraneskirkju

Lögreglumessa verður haldin í Akraneskirkju á morgun, 1. maí, kl. 11. Sr. Eðvarð Ingólfsson þjónar fyrir altari, ræðumaður er Theódór Þórðarson yfirlögregluþjónn og Lögreglukór Reykjavíkur syngur undir stjórn Tómasar Guðna Eggertssonar. Allir eru hjartanlega velkomnir en Lögreglukórinn hvetur sérstaklega lögreglumenn, fjölskyldur þeirra og samstarfsfólk í lögreglunni til að fjölmenna og taka þátt í þessum hátíðlega viðburði. Að lokinni messu verður boðið upp á kaffiveitingar í safnaðarheimili kirkjunnar.