Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. mars 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lögregluaðgerðir – áframhaldandi gæsluvarðhald

Þrír karlar og þrjár konur voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðuð í áframhaldandi tveggja vikna gæsluvarðhald, eða til 26. mars, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fólkið var handtekið í síðustu viku í kjölfar umfangsmikilla aðgerða á höfuðborgarsvæðinu og víðar, en tilefni þeirra var rökstuddur grunur um mansal, peningaþvætti, brot á atvinnuréttindum útlendinga og grunur um skipulagða brotastarfsemi.

Rannsókn málsins miðar ágætlega.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.