Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. júní 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lögreglan leitar vitna –

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna vegna atviks sem átti sér stað aðfararnótt 30.05.2015 um klukkan 03:30 við Grettisgötu. Þar voru þrjár konur sitjandi í bíl, en þær gáfu sig á tal við mann sem þar var og bentu honum á konu og karl í undirgögnum sem eru við hús númer 3.

Konurnar voru að hvetja hann til að hafa afskipti af fólkinu en talið er að karlinn í undirgöngunum hafi áreitt konuna kynferðislega.

Við biðjum konurnar um að hafa samband við lögreglu, annaðhvort gegnum netfangið einar.jonsson@lrh.is , gegnum einkaskilaboð á fésbókarsíðu LRH eða gegnum símann 444-1000.