Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

26. mars 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lögreglan leitar tveggja manna

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar mannanna, sem hér sjást á ferð í dökkgráum Toyota Yaris, í tengslum við mál sem er til rannsóknar hjá embættinu. Ef einhver þekkja til mannanna, eða vita hvar þá er að finna, eru hin sömu vinsamlegast beðin um að hringja í lögregluna í síma 112, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is

Þótt andlit mannanna sjáist aðeins að hluta má ætla að einhver geti samt borið kennsl á þá.