Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. apríl 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lögreglan leitar þriggja þjófa

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar þriggja manna sem reynt hafa að brjótast inn í hraðbanka og verslanir undanfarna daga. Þeir eru taldir vera um þrítugt og eru „útlendingslegir“ á að líta. Meðfylgjandi myndir hafa náðst af þeim úr eftirlitsmyndavélum en á þeirri sjöttu er mynd af tösku eins og þeirri sem notuð var á vettvangi. Þeir sem telja sig þekkja mennina eða búa yfir upplýsingum um málið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444 1100.