Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. mars 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lögreglan leitar skotmanns

Rétt upp úr kl. 19.00 í kvöld fékk Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynningu um að maður hafi komið inn á Dubliners við Naustina í miðborg Reykjavíkur og hleypti af einu skoti inn á staðnum. Skotið hafnaði á vegg við barinn. Maðurinn hljóp síðan strax af vettvangi. Lögreglan brást skjótt við og sendi mikið lið á vettvang ásamt sérsveit og sjúkraliðar voru einnig kallaðir til. Lögreglan vopnaðist og var viðbúnaður mikill. Enginn slasaðist alvarlega en tveir gestir staðarins fengu aðhlynningu, annar með skrámu á höfði og hinn aðilinn hafði áhyggjur af heyrn sinni. Stuttu seinna fundu lögreglumenn skotvopn nærri vettvangi. Lögreglan leitar nú skotmannsins og hvetur viðkomandi til þess að gefa sig fram.

Lögreglan mun ekki veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.