4. júlí 2016
4. júlí 2016
Þessi frétt er meira en árs gömul
Lögreglan leitar manna vegna rannsóknar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þarf að ná tali af mönnunum á meðfylgjandi myndum vegna máls sem hún hefur til rannsóknar, og eru þeir beðnir um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000. Ef einhverjir þekkja til mannanna, eða vita hvar þá er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið gudmundur.pall@lrh.is eða einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.