Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. janúar 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lögreglan á Selfossi tók átta ótryggð ökutæki úr umferð

Í gærkvöldi tók lögreglan á Selfossi átta ökutæki úr umferð vegna þess að eigendur þeirra höfðu vanrækt vátryggingaskyldu. Bifreiðarnar höfðu því verið í umferð ótryggðar sem er vissulega mjög alvarlegt mál í þeim tilvikum sem ökumenn þeirra valda tjóni sem einmitt hefur átt sér stað í nokkrum tilvikum síðastliðna mánuði. Sekt við þessu broti eru 30.000.00 krónur sem væru betur varið í að viðhalda ábyrgðatryggingunni.