Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

9. maí 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lögreglan á Selfossi lagði hald á hálft kíló af kannabis

Lögreglumaður í almennu umferðareftirliti hafði skömmu fyrir miðnætti í gær afskipti af ungri konu sem ók bifreið sinni austur Suðurlandsveg í Ölfusi. Við fyrstu samskipti vaknaði grunur um að ökumaðurinn væri undir áhrifum fíkniefnum. Fíkniefnahundurinn Buster var kallaður til og þefaði hann fljótlega uppi kannabisefni sem voru í bifreið konunnar. Gerð var húsleit á heimili konunnar þar sem fundust hátt í 500 grömm af kannabis auk lítillrar ræktunar. Konan var handtekin og færð til yfirheyrslu þar sem hún játaði að eiga efnin.