Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

3. maí 2005

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lögreglan á Ísafirði leggur hald á fíkniefni.

Á tíunda tímanum í morgun handtók lögreglan á Ísafirði tvo karlmenn sem voru að koma akandi á sitt hvorri bifreiðinni innan úr Ísafjarðardjúpi og á leið til Ísafjarðar. Karlmennirnir, sem báðir hafa áður komið við sögu lögreglu vegna fíkniefnamála, voru handteknir og framkvæmd var leit á þeim og í bifreiðum þeirra.

Við leit í bifreið annars mannsins fundust rúmlega 7 grömm af kannabisefnum. Fíkniefnaleitarhundurinn Dofri aðstoðaði lögregluna við leitina.

Mennirnir voru í haldi lögreglu fram á miðjan dag, en þá var þeim var sleppt lausum. Mál þess aðila er efnin fundust hjá verður sent lögreglustjóra til sektarmeðferðar innan skamms.