Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. júlí 2013

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lögregla og Landhelgisgæsla í umferðareftirliti á Suðurlandi

Í dag var farið í umferðareftirlit með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Flogið var með Suðurlandsvegi frá Selfossi austur á Mýrdalssand og upp í Landsveit. Hraði ökutækja var mældur úr þyrlunni á flugi. Einnig voru lögreglumenn með ratsjá sem notuð var á jörðu. Á Mýrdalssandi voru tveir ökumenn kærðir fyrir hraðakstur. Annar ók á 111 km hraða og hinn á 112 km hraða. Aðrir gátu státað af því að þurfa ekki að eyða peningum í sektir. Umferðareftirlit af þessu tagi er mjög mikilvægt og nýtist vel í að fylgjast með utanvegaakstri. Landhelgisgæsla og lögregla hafa undanfarin sumur átt mjög gott samstarf vegfarendum og öðrum til heilla.