31. október 2022
31. október 2022
Lionsklúbbur Selfoss og Emblurnar gefa til HSU
þann 27. október 2022 afhenti Lionsklúbburinn Embla og Lionsklúbbur Selfoss formlega til Lyflækningadeildar HSU á Selfossi líknarrúm af nýjustu gerð ásamt náttborði, loftdýnu og fleiri fylgihlutum.
Heildarandvirði gjafarinnar er 1.725.190. Rúmið var tekið í notkun núna á haustmánuðum og hefur það nú þegar sannað gildi sitt. Rúmið er svokallað veltirúm sem léttir alla umönnun sjúklings og auðveldar starfsfólki að sinna honum á sem allra besta hátt. Á deildinni er mikið lagt upp með að sinna líknarhjúkrun sem best og það er því algjörlega ómetanlegt að finna stuðning við það starf á þennan hátt.
Starfsfólk Lyflækningadeildarinnar þakkar kærlega fyrir þessa góðu gjöf og hvetur Sunnlendinga að styrkja við gott starf Lionsklúbbana. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Lionsklúbbarnir styðja við bakið á HSU og er stofnunin einstaklega gæfusöm að eiga svona góða bakhjarla.