Fara beint í efnið

10. apríl 2026

Lionsklúbbur Akraness færir gjafir

Félagar í Lionsklúbbi Akraness færði sjúkrahúsi HVE á Akranesi gjafabréf til kaupa á búnaði

Um er að ræða fjórar gjafir:

  • Sciller hjartalínuritstæki til notkunar í hjartaáreynsluprófum á göngudeild.

  • Siemens blóðrannsóknatæki fyrir fæðingadeildina.

  • Mach 130 F færanlegt vinnuljós fyrir slysadeildina.

  • Áhöld til aðgerða á blöðruhálskirtli fyrir skurðstofuna.

Guðjón Viðar Guðjónsson formaður klúbbsins og Þórir Bergmundsson fulltrúi áhaldakaupasjóðs afhentu forstjóra og framkvæmdastjóra hjúkrunar á HVE gjafabréfið.

Lionsklúbburinn sem fagnar 70 ára afmæli á þessu ári hefur til margra áratuga verið öflugasti bakhjarl nærsamfélagsins á Akranesi á tækjakaupum fyrir sjúkrahúsið og stutt við fjölmarga þjónustuþætti með góðum tækjabúnaði.

Stofnin færir Lionsklúbbnum innilega þakkir fyrir þessar veglegu gjafir.