Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. janúar 2018

Þessi frétt er meira en árs gömul

Líkfundur við í Öræfum

Björgunarsveitarmenn í Öræfum fundu, um hádegisbil, látinn mann við Sandfell í Öræfum. Björgunarsveitir voru kallaðar til þegar farið var að grenslast fyrir um ástæður þess að bifreið hafði staðið mannlaus í einhvern ótiltekin tíma á bifreiðastæði skammt frá Sandfelli. Um er að ræða bílaleigubifreið í útleigu til erlends ferðamanns. Málið er í rannsókn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi en ekki er unnt að veita nánari upplýsingar um það að svo stöddu.