Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. janúar 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Líkamsárás í miðborginni – þrír úrskurðaðir í gæsluvarðhald

Þrír karlar á þrítugsaldri voru í kvöld í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í átta daga gæsluvarðhald, eða til 22. janúar, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á líkamsárás í miðborg Reykjavíkur síðastliðna nótt.

Rannsókn málsins miðar vel, en ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um gang hennar að svo stöddu.