9. mars 2022
9. mars 2022
Þessi frétt er meira en árs gömul
Líkamsárás í miðborginni – gæsluvarðhald til 6. apríl
Karlmaður á þrítugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald, eða til 6. apríl, á grundvelli rannsóknar- og almannahagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegri líkamsárás í miðborginni aðfaranótt sl. laugardags.
Rannsókn málsins miðar vel.
Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.