7. október 2005
7. október 2005
Þessi frétt er meira en árs gömul
Líkamsárás í Garðabæ, aðfaranótt sunnudagsins 2. okt. 2005
Í tengslum við rannsókn alvarlegrar líkamsárásar sem átti sér stað í Garðabæ aðfaranótt sunnudagsins 2. október, voru þrír menn hnepptir í gæsluvarðhald, tveir til miðvikudagsins 5. október og hefur nú verið sleppt, en sá þriðji til föstudagsins 7. október. Lögregla hefur krafist áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir honum og verður sú krafa tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjaness síðar í dag.