Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. október 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Líkamsárás, hótanir og frelsissvipting

Þrír karlar voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdir í fangelsi í svokölluðu Black Pistons-máli en tveir mannanna eru meðlimir í samnefndum vélhjólaklúbbi. Málið kom til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í maí en þangað leitaði árásarþoli eftir að hafa orðið fyrir líkamsárás, hótunum og frelsissviptingu. Dóm Héraðsdóms má lesa með því að smella hér.