6. mars 2012
6. mars 2012
Þessi frétt er meira en árs gömul
Líkamsárás – gæsluvarðhald til 9. mars
Karl á fertugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í gæsluvarðhald til 9. mars að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Manninum er jafnframt gert að undirgangast geðrannsókn en hann var handtekinn á lögmannsstofu í austurborginni í gærmorgun þar sem hann veitti tveimur starfsmönnum áverka með eggvopni. Annar þeirra er alvarlega slasaður.