Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. september 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Líkamsárás – gæsluvarðhald til 30. september

Kona á sextugsaldri hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 30. september að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Konan var handtekin í íbúð í Kópavogi síðdegis í gær en grunur leikur á að hún hafi stungið karl á sjötugsaldri með hnífi. Hann var einnig í íbúðinni þegar lögreglan kom á vettvang en á manninum voru nokkur stungusár. Maðurinn var fluttur á slysadeild en konan færð á lögreglustöð. Hún var í annarlegu ástandi.