15. júlí 2011
15. júlí 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Líkamsárás – gæsluvarðhald til 29. júlí
Karl um fertugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 29. júlí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn, sem er erlendur ríkisborgari og hefur verið búsettur hérlendis í átta ár, var handtekinn á veitingahúsi í miðborginni seint í gærkvöld. Þangað var lögreglan kölluð vegna líkamsárásar en sá sem fyrir henni varð, karl á fimmtugsaldri, hlaut lífshættulega áverka og liggur nú þungt haldinn á sjúkrahúsi.