23. apríl 2012
23. apríl 2012
Þessi frétt er meira en árs gömul
Líkamsárás – gæsluvarðhald til 27. apríl
Sautján ára piltur hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 27. apríl að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Pilturinn var handtekinn í Kópavogi um helgina eftir að lögreglu barst tilkynning um alvarlega líkamsárás. Þar hafði hann veitt konu á þrítugsaldri áverka með hnífi.