22. júní 2009
22. júní 2009
Þessi frétt er meira en árs gömul
Líkamsárás – fimm handteknir
Tilkynnt var um alvarlega líkamsárás í heimahúsi í austurborg Reykjavíkur snemma í gærkvöldi. Sá er fyrir árásinni varð, maður á þrítugsaldri, var fluttur á slysadeild með talsverða áverka á höfði og víðar um líkamann. Fimm einstaklingar voru handteknir skömmu síðar í tengslum við rannsókn málsins. Þeir voru yfirheyrðir í dag og hefur fjórum þeirra verið sleppt. Gerð verður krafa um gæsluvarðhald yfir þeim fimmta.
Aðilar málsins eru allir af erlendu bergi brotnar en búsettir hér landi.