Fara beint í efnið

11. maí 2021

Leyfisbréf kennara á Ísland.is

Leyfisbréf kennara aðgengileg á Ísland.is og í fyrsta fasa verkefnisins eru þegar aðgengileg útgefin leyfisbréf frá 1. janúar 2020.

Kennarar leyfisbref

Markmið Ísland.is er að bæta stafræna þjónustu við almenning og gera hana skýrari og hraðvirkari. Nú er unnið að því að einstaklingar geti nálgast upplýsingar um starfsleyfi sín í gegnum vefinn og þar ríða kennarar á vaðið. Leyfisbréf kennara verða aðgengileg í gegnum
Ísland.is og í fyrsta fasa verkefnisins eru þegar aðgengileg útgefin leyfisbréf frá 1. janúar 2020.

Leyfisbréf, sem er staðfesting á réttindum til kennslu og til að bera starfsheitið kennari, eru aðgengileg með rafrænum skilríkjum á Mínum síðum á uppfærðum vef Ísland.is. Leyfisbréf sem gefin voru út fyrir 1. janúar 2020 munu bætast í gagnagrunninn á næstu misserum.

Menntamálastofnun annast útgáfu leyfisbréfa til kennara og veitir nánari upplýsingar um þau. Nú er gefið út eitt leyfisbréf þvert á skólastig leik-, grunn- og framhaldsskóla.

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra:

„Þetta er frábært skref sem sparar bæði tíma og fyrirhöfn. Við gleðjumst yfir því að kennarar verði þeir fyrstu sem geta nýtt sér þessa mikilvægu þjónustu og nálgast leyfisbréf sín á öruggan og milliliðalausan hátt á Ísland.is.“

Andri Heiðar Kristinsson framkvæmdastjóri Stafræns Íslands:

„Við höfum átt frábært samstarf við Menntamálastofnun um þetta verkefni. Vefurinn Ísland.is er í örri þróun og sífellt fleiri þjónustuþættir að bætast við – við hvetjum alla til þess að fylgjast vel með og nýta sér vefinn. Starfsleyfi fleiri fagstétta eru í vinnslu og er meðal annars ráðgert að starfsleyfi heilbrigðisstarfsfólks bætist við á vefinn í sumar.“

Arnór Guðmundsson forstjóri Menntamálastofnunar:

„Við hjá Menntamálastofnun fögnum þessum áfanga í bættri þjónustu við kennara. Samstarfið við Stafrænt Ísland hefur skipt sköpum fyrir okkur í að hrinda verkefnum sem þessum í framkvæmd. Vonandi er þetta aðeins fyrsta skrefið af mörgum í þróun stafrænnar þjónustu í þágu menntunar.“

Sömuleiðis er unnið að því að birta niðurstöður samræmdra könnunarprófa grunnskólanema á vef Ísland.is og er þar þegar að finna niðurstöður nemenda sem tóku prófin árin 2020 og 2021.

Vinna við gerð gagnagrunnsins hófst vorið 2020 og er liður í fjárfestingarátaki vegna þróunar stafrænnar þjónustu.

Verkefnið er unnið í góðu samstarfi Menntamálastofnunar, Stafræns Íslands og háskólanna.