Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

3. mars 2019

Þessi frétt er meira en árs gömul

Leit í og við Ölfusá lokið í dag.

Björgunarsveitir luku leitarverkefnum við leit að manni sem fór í Ölfusá að kvöldi 25. febrúar s.l. um kl. 15:30 í dag án þess að leitin bæri árangur. Svæðisstjórn björgunarsveita á Svæði 3 mun funda með lögreglu um framhaldið eftir helgina en fyrir liggur að framkvæma fjölgeislamælingu í farvegi árinnar neðan Ölfusárbrúar við fyrsta tækifæri til að reyna að staðsetja bifreið mannsins. Alveg er óljóst um árangur af slíkri mælingu enda áin straumþung og loftbólur í henni en hvorutveggja takmarkar mjög getu þeirra tækja sem þarf í þessa aðgerð.

Lögregla og aðstandendur mannsins vilja þakka björgunarsveitum og viðbragðsaðilium öllum mikið og óeigingjarnt starf við leitina