17. maí 2023
17. maí 2023
Þessi frétt er meira en árs gömul
Leiðtogafundurinn
Fram undan er seinni dagur leiðtogafundar Evrópuráðsins í Hörpu og eru lokanir áfram í gildi. Lögreglan ítrekar að umferðartafir eru einnig viðbúnar í dag, einkum síðdegis. Mælt er með öðrum ferðamáta en einkabílnum ef því verður við komið.
Vegfarendur eru hvattir til að fara varlega og sýna þolinmæði.