Fara beint í efnið

25. febrúar 2022

Leiðbeiningar til almennings í tilefni af afléttingum takmarkana vegna COVID-19

Þeim áfanga er nú náð í baráttunni við COVID-19 að öllum takmörkunum innanlands og á landamærum var aflétt á miðnætti aðfaranótt 25.2.2022.

Sóttvarnalæknir - logo

Þó að öllum aðgerðum hafi verið aflétt þá er COVID-19 faraldurinn hér enn í mikilli útbreiðslu en alvarlegar afleiðingar hans fátíðar. Það er því áfram mikilvægt að allir hugi vel að ýmsum atriðum sem lúta að greiningu, meðferð og sýkingavörnum til að lágmarka eins og kostur er stjórnlausa útbreiðslu faraldursins og alvarlegar afleiðingar hans.

Á næstu dögum verða uppfærðar ýmsar leiðbeiningar er varða COVID-19 á covid.is og landlaeknir.is og er almenningur beðinn um að kynna sér þær eins og kostur er. Hér fyrir neðan eru nokkur atriði sem mikilvægt er að koma á framfæri við almenning á þessum tímapunkti.

  1. Rannsóknir til greiningar á COVID-19
    Ákveðið hefur verið að bjóða upp á hraðgreiningapróf í stað PCR prófs til greiningar á COVID-19. Á núverandi stað í faraldrinum eru hraðgreiningapróf talin uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til greiningar á sjúkdómnum.
    Þeir sem eru með einkenni sem bent geta til COVID-19 geta áfram pantað sýnatöku í Heilsuveru og einnig hjá einkafyrirtækjum sem bjóða upp á hraðgreiningapróf. Í flestum tilfellum verða rannsóknirnar gerðar með hraðgreiningaprófum og munu niðurstöður liggja fyrir skömmu síðar. Ekki þarf að staðfesta niðurstöðu hraðgreiningaprófa með PCR prófi og eru þau fólki að kostnaðarlausu.
    Nokkrar heilsugæslustöðvar á landsbyggðinni kjósa að bjóða áfram upp á PCR próf í stað hraðgreiningaprófa og má fólk þá búast við að lengri tíma taki að fá niðurstöður.
    Nokkuð er um að fólk taki sjálft hraðpróf (sjálfspróf) heima eða á sínum vinnustöðum og dugar jákvæð niðurstaða prófanna til að greina COVID-19. Ef greininguna á að skrá í opinbera grunna og sjúkraskrá þá þarf hins vegar að staðfesta hana með hraðgreiningaprófi hjá heilsugæslunni eða á viðurkenndum einkareknum stöðum, eða með PCR prófi.

  2. Einstaklingsbundnar sýkingavarnir
    Þó að öllum opinberum sóttvarnaaðgerðum hafi nú verið aflétt, þá er mikilvægt að allir viðhafi sem mest einstaklingsbundnar sýkingavarnir. Í einstaklingsbundnum sýkingavörnum felst að viðhalda sem mest eins metra fjarlægð á milli ótengdra aðila, nota andlitsgrímur í fjölmenni og þar sem ekki er hægt að viðhafa eins metra fjarlægð, huga vel að handhreinsun og nota handspritt, og huga vel að loftræstingu.

  3. Einangrun
    Með afléttingu allra takmarkana gegn COVID-19 þá er skylda þeirra sem greinast með sjúkdóminn til að dvelja í einangrun einnig afnumin. Fólk sem greinist með COVID-19 og er með öndunarfæraeinkenni og hita er beðið um að halda sig til hlés í a.m.k. fimm daga frá greiningu og styðjast þá við leiðbeiningar um einangrun í heimahúsi. Þeir sem greinast en eru með lítil eða engin einkenni og hitalausir, eru hins vegar beðnir um að fara eftir leiðbeiningum um smitgát.
    Þau sem greinast með COVID-19 eru beðin að upplýsa þá einstaklinga sem þau voru í nánd við í 1-2 daga áður en einkenni þeirra hófust eða greining var gerð þar sem aðrir gætu hugsanlega hafa smitast. Þessir einstaklingar teljast útsettir (sjá lið 4 hér fyrir neðan).

  4. Sóttkví og smitgát
    Sóttkví var aflögð með reglugerðarbreytingu þann 12. febrúar sl. og þess í stað voru útsettir einstaklingar hvattir til að viðhafa smitgát í 5 daga. Áfram eru útsettir einstaklingar hvattir til að fara eftir leiðbeiningum um smitgát og fara eftir tilmælum um einangrun eða fara í hraðgreiningarpróf ef þeir fá einkenni á fyrstu viku sem bent geta til COVID-19.

  5. Leiðbeiningar til þeirra sem greinast með COVID-19
    Þeir sem að greinast með COVID-19 er hvattir til að fara eftir leiðbeiningum um einangrun sem koma fram í lið 3 hér að ofan. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, í samvinnu við sóttvarnalækni, mun á næstunni gefa út frekari leiðbeiningar til þeirra sem eru veikir en þar má finna almenn ráð til þeirra sem dvelja heima og einnig leiðbeiningar um hvenær og hvernig nálgast má heilbrigðiskerfið vegna veikindanna.

  6. Vottorð vegna veikinda af völdum COVID-19
    Rannsóknarniðurstöður og vottorð um jákvæð COVID-19 próf verða send til einstaklinga. Vottorð um tímabil veikinda vegna COVID-19 t.d. vegna fjarveru frá vinnu eða skóla þarf að fá hjá lækni eins og vottorð fyrir önnur veikindi. Biðlað er til atvinnurekenda og skólastjórnenda að sýna skilning á að fólk sé heima í veikindum.

Sóttvarnalæknir